Gestur Gunnarsson:
KJARNAKONA
Guðmundur heitinn Einarsson formaður verkfræðingafélagsins sagði mér einu sinni að orðið heimskur þýddi eiginlega að einhver væri ekki víðförull.
Annar merkur maður sagði líka að mannshugurinn þroskaðist í hlutfalli við fjölbreytileika þess umhverfis sem maðurinn hrærðist í.
Einn af þeim sem ekki getur talist heimskur samkvæmt framansögðu er Elinóra Inga Sigurðardóttir sem nú býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Elinóru kynntist ég gegnum félag hugvitsmana, þegar ég af einhverjum dularfullum ástæðum varð forseti félagsins, Elinóra varð þá varaforseti.
Fljótlega sá forsetinn að hann féll ekki vel í hlutverkið og fékk varaforsetann til að taka við. Nýi forsetinn var fljótur að sætta ólík sjónarmið og rak þá burt sem þarna voru á fölskum forsendum. Við hinir skildum nú ekki alveg hvað hjúkrunarfræðingur með háskólapróf í jarðfræði var að gera meðal svona furðufugla. Fljótlega kom í ljós að Elinóra var búin að gera áætlun um það hvernig mætti breyta úrgangi í veðmæta og eftirsótta útflutningsvöru.
Varan var þurrkað fiskroð pakkað í litla plastpoka og selt sem sælgæti fyrir hunda. Framleiðandinn vissi það að það er mikið af ríku fólki í heiminum sem á engan að nema hundinn sinn og sparar ekki neitt við hann. Varan er svo send með pósti beint til kaupenda og enginn kostnaður við milliliði. Af framangreindu má sjá að kjósendum í prófkjörinu gefst kostur á að velja óvenju hæfan einstakling sem er með starfsreynslu á mörgum sviðum í fleiri en einu landi. Nú á þessum tvísýnu tímum þurfum við fólk eins og Elinóru, fólk sem haggast ekki hvað sem á gengur.


