Elinóra Inga Sigurðardóttir

Stefna mín
Mín stefna er í raun fremur einföld:
Ég hef staðfasta trú á því, að þor, frumkvæði og kunnátta einstaklingsins geti nýst heildinni þ.e. öllu samfélaginu til góðs. Til þess að þessir þættir fái að njóta sín til fulls þarf einstaklingurin að hafa frelsi til athafna.
Helstu baráttumál mín eru:
1) Að auðvelda fólki, óháð menntun, aldri eða kyni, að koma hugmyndum sínum á framfæri og virkja til fulls íslenskt hugvit. Á þann hátt er mögulegt að auka fjölbreytileika í íslenskum iðnaði, fjölga atvinnutækifærum og auka verðmæti íslenskrar framleiðslu.
2) Halda lífinu í starfandi fyrirtækjum í landinu og stuðla þannig að aukinni framleiðslu og atvinnusköpun.
3) Að ganga ekki inn í ESB. Ég hef enn ekki séð nein gild rök með slíkri aðild en fjölmörg rök á móti.
4) Koma á vöruskiptasamningum milli landa.
5) Innleiða uppgötvunarkennsluaðferðir í skólum til þess að efla vísinda og sköpunaráhuga hjá nemendum.
6) Innleiða fræðsluskyldu í stað skólaskyldu í efri bekkjum grunnskóla
7) Leyfa hvalveiðar til að halda jafnvægi í vistkerfi hafsins.
8) Stórbæta samgöngur í Reykjavík m.a. með byggingu Sundabrautar.
9) Tengja saman ólík svið atvinnulífsins t.d. heilbrigðisþjónustu og ferðaþjónustu.
10) Að Sjúkratryggingar Íslands gangi strax til samninga við sálfræðinga varðandi meferð einstaklinga með geðræn vandamál t.d. af völdum eineltis og/eða kynferðislegrar misnotkunar. Þetta er afar mikilvægt málefni.
11) Ég vil stórbæta hag og aðstæður gamla fólksins í landinu með ýmsum hætti. Það á það fyllilega skilið.
12) Ég vil að menn gangi alla leið varðandi bygginu Tónlistarhússins með því að klára dæmið.
| HUGSUM ÚT FYRIR KASSANN! |


