Elinóra Inga Sigurðardóttir

Mér er oft hugsað til sögunnar um froskana sem ákváðu að fara í kapphlaup upp í háan turn. Margir höfðu safnast saman til þess að horfa á þá og hvetja til dáða, en í rauninni trúði enginn á að þeir myndu ná þessu markmiði sínu. Þannig fór, að einn af öðrum heltist úr lestinni og fólkið kallaði: “Þetta er alltof erfitt, þið náið þessu aldrei”. En á endanum var einn froskur eftir, sem gafst ekki upp og hann náði toppnum að lokum. Hinir froskarnir vildu fá að vita hvernig hann hefði staðist allar úrtölurnar og svartsýnina í fólkinu. Jú í ljós kom að hann var heyrnarlaus!
Það sem við getum lært af þessu er að hlusta aldrei á úrtölumenn. Þeir ræna þig draumum þínum sem þú berð í hjarta þér.
Undanfarin 10 ár hef ég rekið nýsköpunarfyrirtæki, Elás ehf, Royal Natural, byggt á eigin hugmynd. Nýsköpunin gengur út á það að taka hráefni sem áður var vannýtt og gera úr því lúxusvöru og nota Internetið til markaðssetningar.
Ég hef verið formaður hugvitsmanna og kvenna síðastliðin 11 ár og skipulagt ráðstefnur og sýningar fyrir íslenska og erlenda frumkvöðla. Helstu baráttumál mín eru að virkja íslenskt hugvit, fjölga þannig atvinnutækifærum og auka verðmæti íslenskrar framleiðslu. Við þurfum aukinn fjölbreytileika í íslenskum iðnaði og við þurfum að vinna saman að því að hver og einn fái að nota styrkleika sinn og hæfni. Íslenskar vörur eiga að vera einstakar, hágæða- og vottaðar, helst lífrænar vörur. Við höfum allt til að bera til að svo geti orðið því við eigum ódýra orku, nóg landsvæði, fiskimið og vatn. Við þurfum að huga að sjálfbærni og endurvinnslu en þar liggja mörg ónýtt tækifæri. Við þurfum að fullvinna allar vörur til útflutnings og hámarka þannig virði þeirra, og hef ég þegar sýnt fram á að það er hægt.
Allt það sem þú heyrir hefur áhrif á það sem þú gerir. Þess vegna segi ég við ykkur sem eigið ykkur draum. Verið bjartsýn og hugsið: “Mér mun takast að ná markmiði mínu.”
Láttu drauma þína rætast!


