ég heiti
Elinóra Inga Sigurðardóttir
HVERS VEGNA? HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ KJÓSA?
Hvers vegna eigum við að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, X-D?
1) Við ætlum EKKI að ganga í ESB. Við viljum verja sjálfstæði þjóðarinnar og tryggja yfirráð yfir auðlindum Íslands. Við teljum að við núverandi aðstæður sé hagsmunum þjóðarinnar best borgið utan Evrópusambandsins.
2) Við erum á móti ÖLLUM nýjum sköttum á atvinnulífið og einstaklinga.
3) Við viljum frelsi einstaklingsins til atvinnu og athafna.
4) Við viljum öflugt og heilbrigt atvinnulíf sem er forsenda þess að hægt sé að verja heimilin og grunnstoðir velferðar- og menntakerfisins í landinu.
5) Við viljum tryggja að hér verði til allt að 20.000 (tuttugu þúsund) ný störf á kjörtímabilinu auk þess að vernda þau störf sem fyrir eru.
6) Við viljum koma í veg fyrir að miðstýring og ríkisvæðing verði að ríkjandi skipan. Slík ofstjórn grefur undan athafnafrelsi þjóðarinnar og þar með hagsæld hennar.
7) Við viljum skapa sátt um nýtingu auðlinda okkar
8) Við viljum ráðast í tímabundnar breytingar á skattkerfinu sem hvetja til nýráðninga og þróunarstarfs sem sérstaklega á að gagnast nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum.
9) Við viljum grípa verður til róttækra aðgerða til að koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur missi heimili sín vegna tímabundinna fjárhagserfiðleika.
10)
Við viljum setja lög um þjóðaratkvæðagreiðslur.
Sjálfstæðisstefnan byggist á krafti, frumkvæði og dugnaði fólksins í landinu. Framtak og velferð verða hornsteinar sjálfstæðisstefnunnar hér eftir sem hingað til.
LEITUM NÝRRA LEIÐA! HUGSUM ÚT FYRIR KASSANN ! |
![]() |



